Risafiskur úr Svalbarðsá
Eftir þeim bestu heimildum sem við höfum veiddist risafiskur í Svalbarðsá í Þistilfirði í dag og var fiskurinn 103 cm og veiðimaðurinn enginn annar en Þórður Ingi Júlíusson, bróðir Jón Þórs Júlíussonar leigutaka og eigenda Hreggnasár. En fiskinn veiddi Þórður í Laxahyl en áin hefur gefið 13 laxa það sem af er veiðitímanum, sem verður að teljast fín veiði.
Nýbúið er að laga veiðihúsið, búið að byggja stærri stofu eldhús og aukaherbergi.

