Þingvallakusur að sýna sig á Svörtuklettum
Vel hefur orðið vart við stórar bleikjur á Svörtuklettum við Þingvallavatn síðustu daga. Magnús Haukur Sigurðsson var við veiðar á svæðinu í gær þegar hann ákvað að senda dróna á loft til að kanna aðstæður.
Það sem blasti við var töluvert af stórri kuðunga bleikju á ferðinni um svæðið á grunnu vatni.
Svörtuklettar eru veiðisvæði á norðvesturhluta Þingvallavatns þar sem Móakotsá fellur í vatnið. Svæðið er þekkt fyrir vænar bleikjur og virðist fiskurinn vera vel á sig kominn um þessar mundir.
Þrátt fyrir að minna hafi farið fyrir hinum stórvaxna ísaldarurriða á síðustu árum virðast stóru kuðunga bleikjurnar vera vel virkar og almennt í mjög góðum holdum. Það eru góðar líkur á að veiðimenn geti nælt sér í alvöru Þingvallakusu.


