FréttirRjúpan

Sjaldan sést svona mikið af rúpu

/Myndir: María Gunnarsdóttir

„Já við höfum orðið var við mikið af rjúpunni núna og það er kannski ástæða, fálkunum hefur fækkað, hérna í kringum okkur sést mikið af henni,” sagði ferðaþjónustubóndi norður í landi en þegar farið er um landið sést ótrúlega mikið af rjúpunni.

„Þetta er greinilega fjölgun á milli ára, það sést  hérna fyrir norðan hjá okkur,” sagði hann enn fremur.

Flestir eru sammála að mikið sé af rjúpunni núna  og hún sé mikið með vegum landsins. „Við erum að klára að mynda í fuglabókina mína sem kemur út hjá bókaútgáfunni Tindar í haust og það er mikið af rjúpum, um allt land, sagði María Gunnarsdóttir.

„Við höfum farið víða og það er alls staðar fuglar, aldrei tekið svona mikið af myndum af rjúpunni,” sagði María.

Varptíminn er hjá rjúpunni núna og skiptir miklu að það heppnist vel.