Við erum alltaf að veiða
„Við vorum að byrja rétt áðan en við erum alltaf að veiða,” sögðu vinirnir þeir Klemens Ragnarsson og Stefán Ragnarsson við Elliðavatn í kvöld, þegar þeir voru mættir til að veiða. Og þeir eru duglegir að veiða þessa dagana.
„Ég fékk 74 sentimetra urriða hérna um daginn það var gaman,” sagði Klemens og hélt áfram að veiða eins og Stefán, þeir köstu langt útá vatnið. Fiskurinn var að vaka og myndi eflaust taka von bráðar hjá þeim félögum, áhuginn var fyrir hendi og það skipti öllu máli.
Elliðavatn hefur verið að gefa fiska, væna urriða og bleikjur líka. Fínt verður við vatnið í kvöld, gola og tíu stiga hiti.

