FréttirNámskeið

Vel heppnað fluguveiðinámskeið hjá HS Orku

Starfsfólk HS Orku tók nýverið þátt í fjórum fluguveiðinámskeiðum við Seltjörn á Reykjanesi þar sem Jóhann Sigurður Þorbjörnsson, eða Jói í Veiðiflugunni, leiddi hópinn í gegnum grunnatriði fluguveiðinnar.

Veðrið var klassískt íslenskt, kalt og napurt í norðanátt, en það stoppaði engan. Starfsfólk, makar og börn mættu saman og skemmtu sér vel við að prófa eitthvað nýtt.

Flestir voru að spreyta sig á flugustöng í fyrsta sinn og það var athyglisvert hve margir voru á því að þetta væri í raun miklu auðveldara en þeir höfðu ímyndað sér. „Ég var að stíga mín fyrstu skref í þessu og hafði klárlega miklað þetta aðeins of mikið fyrir mér,“ sagði Viðar Arason, öryggisfulltrúi fyrirtækisins, eftir námskeiðið.

Niðurstaða námskeiðsins var því frábær kvöldstund, góð samvera og fullt af nýju fluguveiðifólki!