25 urriðar á land við opnun Miðsvæðisins í Láxá í Aðaldal
Vorveiðin á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal fór vel af stað um helgina þegar alls 25 urriðar komu á land, sá stærsti 67 cm. Þrátt fyrir mikið vatn í ánni og að hluti veiðistaða væri óveiðanlegur skiluðu þeir staðir sem hægt var að nýta afar góðum árangri.
Fiskurinn virðist hafa komið einstaklega vel undan vetri, er þykkur og fallegur í holdum og það sem vekur sérstaka athygli er að meira hefur sést af minni fiski en í fyrra. Það eru afar jákvæð teikn og gefa góð fyrirheit um áframhaldandi góða veiði í sumar.
„Þrátt fyrir krefjandi aðstæður í byrjun sýndi áin strax sitt rétta andlit. Fiskurinn er í frábærum holdum og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá meira af minni fiski sem lofar mjög góðu fyrir tímabilið,“ segir Ármann Kristjánsson, staðarhaldari á Miðsvæðinu.
Allt bendir því til að spennandi tímar séu fram undan á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal og að veiðimenn megi eiga von á líflegu sumri við eina glæsilegustu urriðaveiði landsins. Stangaveiðifélag Reykjavíkur er umboðssöluaðili fyrir Miðsvæðið og er hægt að nálgast laus veiðileyfi í vefverslun á www.svfr.is


