FréttirMaríulaxOpnun

Fimm fallegir laxar á land og einn maríulax

Maríulax Lilju Böðvarsdóttur með syninum Haraldi Einarssyni og tengdadóttur Birnu Harðardóttur

„Það veiddust fimm laxar í morgun og mamma hans Einars fékk maríulaxinn svo allir fengu einn lax,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir þegar Þjórsá opnaði í morgun hjá Urriðafossi og afrakurinn voru fimm tveggja ára laxa. „Já þetta var flott byrjun hjá okkur en við vorum að byrja núna eftir hádegishléið og ætlum að veiða fram á kvöld. Byrjunin lofar góðu og fiskarnir vænir og vel haldnir úr sjó,“ sagði Harpa Hlín enn fremur.

„Veiðiskapurinn byrjar flott og allir fengu fisk,“ sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi sem veiddi sinn fyrsta lax í sumar; „lofar góðu með sumarið hérna,“ sagði Haraldur meðal annars.

Þjórsáin er ekki vatnsmikil núna enda verið kalt inná hálendinu og ekki mikið hlýindi ennþá.

Haraldur Einarsson háfar og Stefán Sigurðsson búinn að landa fyrsta laxinum