FréttirÞættir

Nýr þáttur Veiðin með Gunnari Bender; „Krakkarnir sýndu veiðimennskunni mikinn áhuga“

DV.is
Nýr þáttur af Veiðin með Gunnari Bender er nú aðgengilegur hér fyrir neðan. Í þættinum fylgjumst við með veiðimönnum framtíðarinnar í árlegri dorgveiðikeppni við Hafnarfjarðarhöfn. Gunnar heimsækir einnig Ágúst Morthens sem var með verslunina Veiðisport á Selfossi um árabil.

Ágúst Morthens


Ágúst rak Veiðisport í 31 ár. Í samtali við Gunnar rekur hann nokkrar skemmtisögur frá löngum verslunar- og veiðiferli. „Hann var tæp 10 pund, það var sá stærsti sem ég fékk,“ segir Ágúst um urriðann. Langavatn segir hann besta veiðivatnið.

Þættirnir eru unnir í samstarfi við Veiðar.is sem er nýr frétta- og upplýsingavefur um sport- og laxveiðar í íslenskri náttúru. Á vefnum eru nýjustu fréttir úr veiðinni og því sem þar gerist á hverjum tíma, auk viðtala og frásagna af veiðiferðum, reynslu og upplifun einstaklinga og hópa í veiðimennsku.

Gunnar Bender ritstjóri er annálaður áhugamaður um stangveiðar í ám og vötnum sem og auðvitað hafi, og er með áratuga reynslu af sportveiði og veiðimennsku. Gunnar hefur ferðast um landið árið um kring og hitt sportveiðifólk og aðra áhugasama um veiðar og útivist. Í þessum ferðum sínum dreifir Gunnar meðal annars Sportveiðiblaðinu, einu mest lesna og virtasta tímariti um laxveiðar á Íslandi en Gunnar stofnaði til útgáfunnar fyrir 40 árum og hefur verið þar ritstjóri og útgefandi síðan.

Veiðiþætti Gunnars þekkja margir en hann hefur framleitt slíka þætti um veiðar í villtri náttúru Íslands og frá helstu laxveiðiám landsins. Nokkrir af veiðiþáttum Gunnars eru aðgengilegir á veidar.is og á YouTube rásinni Veiðar.