Biðin styttist með hverjum deginum
„Við erum mjög bjartsýn á komandi sumar og höfum góða tilfinningu fyrir tímabilinu,“ sagði Ægir Alexander Freyr þegar við spyrjum um veiðitímablið sem styttist verulega í. „Urriðafoss í Þjórsá opnar 1. júní og Ytri-Rangá fylgir svo á eftir 20. júní. Veiðin var feikigóð í báðum ánum í fyrra. Það var einnig töluvert af fiski í ánum þegar tímabilinu lauk í haust, sem gefur okkur trú á að töluvert af smálaxinum sem gekk upp, muni skila sér aftur í ár sem tveggja ára lax. Það verður gaman að fylgjast með hvernig opnunin verður í ár, en við teljum að hún eigi eftir að gefa vel á báðum vígstöðvum.
Það hefur lengi verið trú meðal veiðimanna að ár sem byrja á sléttum tölum séu smálaxaár. Ef sú regla stenst þá kvörtum við ekki, því smálaxaveiðin var mjög sterk hjá okkur í fyrra og við teljum líklegt að hún haldist jafn góð, eða verði jafnvel enn betri.
Það má einnig nefna að salan fyrir komandi tímabil hefur farið mjög vel af stað og úrvalið farið hratt fækkandi með hverjum degi. Nú fer því hver að verða síðastur að tryggja sér dag.
Ef allt smellur saman eins og maður vonar gæti þetta því orðið mjög skemmtilegt sumar í Ytri-Rangá og Þjórsá. Við hjá IO veiðileyfi horfum því jákvætt á komandi laxveiðitímabil 2026,“ sagði Alexander Freyr enn fremur.


