Veiðisafnið var stofnað árið 2003 og opnað í maí 2004. Það er stærsta safn sinnar tegundar á Íslandi og er einstakt á landsvísu en hvergi er hægt að sjá jafn fjölbreitt úrval uppstoppaðra veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra muna en hér, ásamt því að fræðast um veiðidýr, veiðar og náttúruvernd.
Ljón og sebrahestar, gíraffi, hreindýr, apar, selir, bjarndýr og sauðnaut eru hér ásamt fjölda annarra dýra en uppistaða safnsins eru veiðitengdir munir, skotvopn og uppstoppuð veiðidýr. Jafnframt eru hér til sýnis munir frá Náttúrufræðistofnun Íslands sem Veiðisafnið hefur til sýningar samkvæmt sérstökum samningi. Alla tíð hefur verið tekið á móti stórum sem litlum hópum, veiðiklúbbum, félögum, fjölskyldum, jafnt og einstaklingum sem eiga leið hjá á auglýstum sýningartíma eða vilja panta einkaheimsóknir, þar sem safnaleiðsögn er ítarlegri og tímasetningar ákveðnar fyrirfram.
Skólahópar komu hér strax eftir opnun og er eftirtektarvert hve safnið víkkar sjóndeildarhring barna og unglinga er varðar villt dýr, innlend og erlend, veiðar og veiðiaðferðir, náttúruvernd og friðun svo að eitthvað sé nefnt og er fyrirsjánlegt framhald á þessu. Á heimasíðu safnsins www.veidisafnid.is má einnig finna upplýsingar um Drífuvinafélagið sem stofnað var 12. mars 2005.


Mynd frá Veiðisafninu Stokkseyri.