Fréttir

Blússandi gangur hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur

Aðalfundur SVFR var haldinn 26. febrúar, í Akóges salnum í Lágmúla 4.

Starf Stangaveiðifélags Reykjavíkur gekk afar vel á árinu 2025 og methagnaður varð af rekstrinum. Heildartekjur námu 669,2 milljónum króna og hagnaður ársins var 66,2 milljónir króna. Þetta er fimmta árið í röð sem eiginfjárstaða félagsins styrkist, en þar á undan var hún veik um langt skeið. Ýmsir samverkandi þættir skýra bætta afkomu: meiri sala veiðileyfa en áætlað var, jákvæð afkoma allra ársvæða, almennur agi í rekstri félagsins, bættir innheimtu- og skráningarferlar, öflugt starfsfólk og fjölgun félagsmanna.

Fjármagnstekjur voru óvenju miklar og hagnaður varð af rekstri Veiðikortsins. Þá hefur stjórn lagt ríka áherslu á að tekjur af hverju veiðisvæði standi undir kostnaði, í stað þess að afgangur af einu svæði sé nýttur til að greiða niður tap af öðru. Mikilvægt er að halda þeirri stefnu til streitu þótt aðstæður geti verið krefjandi.

Rekstur veiðihúsa gekk vel en félagið rak í eigin nafni húsin á urriðasvæðunum fyrir norðan en útvistaði rekstri veiðihúsanna við Langá og Haukadalsá.

Helga Jónsdóttir, gjaldkeri SVFR, fór yfir ársreikninginn á fundinum. Hún sagði sterka eiginfjárstöðu mikilvæga vegna mikilla fjárskuldbindinga félagsins og að nauðsynlegt væri að hafa vaðið fyrir neðan sig. Ingimundur Bergsson, framkvæmdastjóri, fór yfir rekstraráætlun ársins 2026. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að félagið skili ríflega 42 milljóna króna hagnaði á yfirstandandi rekstrarári.