FréttirSportveiðiblaðið

Þrautinni þyngri að landa verðlaunum á stórmóti

Ísland er komið í undanúrslit á EM 2026 í handbolta og því ekki úr vegi að birta aftur úr viðtali við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfarann sem birtist í Sportveiðiblaðinu fyrr í sumar:

SPORTVEIÐIBLAÐIÐ – viðtal Eggert Skúlason:
… „Að vera landsliðsþjálfari er 24/7 vinna. Þó svo að leikirnir og æfingar séu ekki margir þá er að svo mörgu að huga. Ástand leikmanna, skipulag og fleiri hlutir en Sportveiðiblaðið getur nefnt á nafn. „Já. Það er alveg rétt. Þetta er eitthvað sem maður er stöðugt að hugsa um og skipuleggja. Eini staður inn þar sem ég hugsa ekki um handbolta er þegar ég kemst til að veiða og það er eitt það besta sem ég kemst í. Tæmi hugann og er bara einn með sjálfum mér eða elsta stráknum mínum, Bjarka og við erum saman að veiða…

… Að landa verðlaunum á stórmóti í handbolta er þrautin þyngri. Kannski er það ekki ósvipað og að landa þeim stóra í lax- eða silungsveiði. Þegar líður á mótið í handboltanum verða leikirnir sífellt stærri og misstígi menn sig er draumurinn úti. Það er eins með stórlaxinn. Aldrei er hættan meiri en á lokametrunum. Það má ekki missa einbeitinguna og freista þess að draga hann á land áður en rétta augnablikið rennur upp. Stærð og styrkur þessara fiska gerir það að verkum að lokahnykkurinn þegar þetta er að kárast er hættulegastur. Við þær aðstæður hafa margir stórlaxar tapast. Fyrsta verkefnið í janúar er að setja í hann, sem sagt komast í milliriðil, en þeir verða tveir. Tvö efstu liðin í hvorum milliriðli leika svo um verðlaunasæti. Sigurvegarar í undanúrslitum leika um gullið. Tapliðin leika um bronsið. Það eru þessir leikir sem alla Íslendinga dreymir um að við spilum. En til þess þarf allt að ganga upp og klókindi og heppni þarf líka að vera í liði með okkur. Sjáum hvað setur. Það er fátt skemmtilegra en síðari hluti janúar þegar skammdegið er hvað mest, að horfa á strákana okkar á stóra sviðinu.“

Nú verður spennandi að sjá næstu leiki Íslands þar sem keppt verður um verðlaunasæti við bestu handboltaþjóðir heims.