Veiðisafnið segir frá áður óþekktum byssusmið
Byssusýning Veiðisafnsins 2026 verður haldin laugardaginn 14. mars og sunnudaginn 15. mars 2026 kl. 11 – 18. Þar verða m.a. kynntar og sýndar byssur frá Steinþóri Matthíasi Stefánssyni (1891 – 1967) sem nýlegar komu fram. Um er að ræða einstakan fund í byssu- og iðnsögu Íslands og eru byssur Steinþórs engu líkar. Sonarsonur Steinþórs og nafni, Steinþór Stefánsson, hefur ánafnað Veiðisafninu samtals11 haglabyssum og eru 9 af þeim smíðaðar af Steinþóri með ýmsum lásgerðum í 16ga. og 12ga. sem og ein ca. 410 minkabyssa.
Einnig verða kynntar skammbyssur sem Eiríkur Haraldsson rennismiður smíðaði, sjaldgæfar mjög og listasmíði en aðeins 5 eintök eru til. Nefndi hann þær Þrumur og eru þær í cal. .357Mag., nákvæm eftirgerð af Colt SAA.

Félagar úr Skotíþróttafélagi Kópavogs mæta og sýna mikið úrval skotvopna. Má þar nefna riffil og fylgihluti frá Jóni Þór Sigurðssyni Evrópumeistara í riffilskotfimi. Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður verður einnig með kynningu á byssu- og hnífasmíði sinni.
Einnig má nefna byssur frá Jóni Björnssyni – Drífurnar frá Dalvík – og byssur frá Jóni Þorsteinssyni frá Ólafsfirði, sem einnig eru til sýnis.
Heimasíða Veiðisafnsins verður uppfærð samhliða byssusýnungunni þann 14.mars og má lesa þar um þessar byssur og byssusmiði á https://hunting.is

