DorgveiðiFréttir

16 holur en lítil veiði

Dorgað fyrir fisk á Hafravatni en lítil veiði þennan daginn

„Þetta var fyrsta tilraunin hjá mér á dorgi  en guttinn orðinn óþreyjufullir að að bíða eftir vorveiðinni, eins og fleiri veiðimenn,“ sagði Guðjón Davíð Pétursson, sem var á dorgi á Hafravatni fyrir fáum dögum og bætti við; „þessi veiðiskapur er ekkert nema bara gaman og góð útivera. Við vorum ekki lengi og fengum ekkert, hitti einn  veiðimann sem er vanur á dorgi þarna og hann varð ekki var heldur. Svolítið skrítið, því hann fengi alltaf eitthvað, hafði fengið fiska nokkrum dögum áður. Þessi veiðimaður hafði gert 16 holur þennan daginn. Reyndum bara tvær holur en munum örugglega reyna síðar, þetta er skemmtilegt,“ sagði Guðjón Davíð enn fremur.