FréttirOpnun

Mokveiði í Geirlandsá fyrstu dagana

Halldór Gunnarsson með fisk úr Geirlandsá

Veiðin hefur svo sannarlega verið góð fyrstu daga veiðitímans þrátt fyrir misjafnt verður. Geirlandsá Litlaá í Kelduhverfi  og Tungulækur hafa verið að gefa frábæra veiði. Þetta hefur verið mok þar á köflum og líklega eru komnir á milli 300 0g 400 fiskar í Geirlandsá fyrstu dagana sem er mjög gott.

„Veiðin gekk vel í þessum fyrsta veiðitúr ársins, en við fengum rúmlega 200 fiska í Geirlandsá,“ sagði Halldór Gunnarsson, sem var að koma úr ánni en þeir voru í öðru hollinu í ánni, fyrsta hollið sem opnaði ána veiddi 162 fiska.

„Það veiddist mest á fiskinum í Efri og Neðri Ármótum en stærsti fiskurinn hjá okkur var 95 sentimetra. Fiskarnir voru að taka allskonar flugur eins Olive Ghost og Rektorinn meðal annars,“ sagði Halldór í lokin.

Veðurfarið hefur ekki verið upp á marga fiska til að byrja með en það er spáð hlýrra veðri næstu daga og fleiri fréttir á leiðinni. Vökin sú eina á Vífilstaðavatni er að stækka með hverjum deginum og veiðimenn byrjaðir að veiða þar. 

En það eru ennþá til veiðiár sem ekki verið hægt að opna vegna ísa en það ætti að batna á allra næstu dögum. Veðurspáin bendir til þess.

Hafsteinn Már Sigurðsson með sjóbirting úr Geirlandsá