Það stór bleikja að hún tekur ekki – mikið fjölmenni við Elliðavatn
„Já það eru fiskar hérna stór bleikja og urriðar en þeir taka ekki ennþá,” sagði Magnús Kárason sem hafði komið sér fyrir á brúnni við Elliðavatn um hádegi og þar voru fiskar, vel vænir en vandamálið var að fá þá til að taka.
„Sumarið er að byrja og það er fiskur,” sagði Magnús og beið eftir að fiskurinn tæki.
Það var gífurlega fjölmennt við Elliðavatn, ungir veiðimenn í hópum og áhuginn skein úr andlitum þeirra. „Þetta er allt að byrja,” sagði Óli urriði og það var glampi í augunum á honum, meira en venjulega.
„Mætingin er góð, kaffi og kleinur,” sagði Ingimundur Bergsson hjá Veiðikortinu og dóttir hans stóðu vaktina í kaffinu og kleinum.
Þetta er allt að byrja og Geir Thorsteinsson er búinn að fá fyrstu urriðana í sumar. Það er varla hægt að hafa þetta betra.


Myndir: María Gunnarsdóttir

