Stangaveiðifélag Reykjavíkur SVFR hefur samið um leigu á veiðirétti í Miðá í Dölum og Tunguá frá og með sumrinu 2022. Ragnheiður Thorsteinsson, varaformaður SVFR og Guðbrandur Þorkelsson, formaður Fiskræktar-og veiðifélags Miðdæla skrifuðu undir samning þess efnis í Miðskógi í Dölum.
Ragnheiður  segir Miðá vera mikinn feng fyrir félagið. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á starfi SVFR og undanfarið hefur félagið stækkað. Ég fagna því mjög að geta boðið félagsmönnum veiðileyfi í Miðá og Tunguá; þriggja stanga veiðisvæði sem geymir bæði lax og sjóbleikjur. Stór hópur félagsmanna hefur kallað eftir fleiri svæðum eins og þessu, fallegri og aðgengilegri veiðiá með góðum húsakosti þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfir. Þetta er eiginlega fullkomin félagsá fyrir okkur þar sem fjölskyldur og veiðihópar geta notið lífsins til fulls“ segir Ragnheiður.
Veiði hefst í Miðá þann 1. júlí og stendur út september. Frábærlega hefur hefur gengið að selja í ána og eru áin að verða uppseld samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Fjölskyldur munu flykkjast til veiða í ánna í sumar, enda tilvalin veiðiá fyrir fjölskylduna.