Kastað til bata í Langá á Mýrum
Um helgina var „Kastað til bata“ sem er endurhæfingar verkefni á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagið – Stuðningur og ráðgjöf og Stangaveiðifélags Reykjavíkur, SVFR, þar sem konum sem eru í endurhæfingu eftir brjóstakrabbamein er boðið í veiðiferð þar sem m.a. eru kennd fluguköst og að vaða yfir ár.
Kvennanefnd SVFR sér um leiðsögn og Veiðihornið Síðumúla sér um að konur séu rétt græjaðar.
Verkefnið hófst árið 2010 og er hugmynd frá Bandaríkjunum „Casting for recovery“ og hugsað sem endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Að kasta flugu með flugustöng er góð æfing fyrir brjóstvöðvana.
Við byrjum á að taka kastkennslu/æfingu við húsið, síðan var farið fyrir neðan Byrgislaut og vaðið yfir. Fyrir sumar getur það verið áskorun því líkaminn er í alls konar ástandi eftir meðferðir. Allar stóðu þær sig vel og Tumi fylgdist með að allar kæmu klakklaust yfir. Að þessu loknu var haldið niður að á að veiða. Spenningur var í hópnum því sést hafi til fiska í ánni. Veðurguðirnir voru ekki alveg að vinna með okkur, mikið rok sem var ekki að auðvelda köstin en gleðin var til staðar.
Þetta var virkilega skemmtilegur hópur og gaman að fá að leiðsegja konum við ánna.




