Hin árlega dorgveiðikeppni sumarnámskeiðanna í Hafnarfrirði fer fram miðvikudaginn 22. júní við Flensborgarbryggju. Keppnin, sem stendur yfir frá kl. 13:30-15:00 er opin öllum börnum á aldrinum sex til tólf ára. Keppt verður í þremur flokkum – flestu fiskarnir, stærsti fiskurinn og furðufiskur 2022.
Hægt verður að fá færi og beitu á staðnum.
Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sjá um gæslu á svæðinu og mun Siglingaklúbburinn Þytur sér um gæslu af sjó.
Börn sex til tólf ára eru hvött til að taka þátt.
![Dorgveiðikeppni Hfj](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/06/mynd-41-Veidin-er-okkur-í-blód-borin-1024x683.jpg)
![Dorgkeppendur Hfj](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/06/mynd-26b-vaenn-ufsi-og-einlaeg-gledi-1024x768.jpg)
Myndir: Úr myndasafni, Dorgveiðikeppnin í Hafarfirði 2019.