FréttirLaxveiðiár

Stóra Laxá – Gljúfrin – heitasta veiðisvæði landsins

Fallegt við Stóru Laxá í Hreppum

Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km² vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur sem gerir það að verkum að landslag með henni er bæði fjölbreytt og mikilfenglegt.
Flestir veiðimenn þekkja veiðisvæðin sem oft hafa verið nefnd Stóra Laxá I, II, III og IV – sem núna heita Neðri Stóra Laxá og Efri Stóra Laxá – en færri þekkja svæðið sem þar er fyrir ofan.

„Þetta er meiriháttar svæði og flottir veiðistaðir,“ sagði veiðimaður sem hefur veitt þarna nokkrum sinnum.

Gljúfrin
2 stanga ævintýri í efstu giljum Stóru Laxár. Stangirnar eru seldar saman eða stakar, stakir dagar í senn. Ef óskað er eftir er hægt að fá gistingu í fínu húsi, í sjálfsmennsku.
Veiðisvæðið geymir bæði stóra laxa og urriða, veiðisvæðið sjálft er 2-3 km langt með nokkrum merktum nefndum veiðistöðum, en fleiri ónefndum þar á milli. Verð veiðileyfa er stillt í hóf, kr. 39.000 stöngin.
Laxveiðin byrjar ágægtlega, Norðurá hefur gefið nokkra laxa, en Blanda ekki lax ennþá en lax slapp í dag af hjá veiðimanni.