BleikjaFréttir

Frítt að veiða í Hlíðarvatni, í Selvogi á sunnudaginn

Sebastían Levi með bleikjuna flottu úr Hliðarvatni /Mynd: Sigurjón

Stangaveiðifélögin, sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi, bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu næstkomandi sunnudag hinn 14 júní. Þetta eru Stangaveiðifélagið Árblik, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík.
Veðurspáin fyrir Selvoginn á sunnudaginn lofar góða. 

Fulltrúar frá félögunum verða á staðnum og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir. Einnig verður að fá á staðnum ýmsar upplýsingar um vatnið og veiðina í því.
Gestum er frjálst að koma árla morguns á sunnudeginum og veiða til kl. 17:00 um kvöldið. Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf veiðistað, tegund, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil vegna hættu fyrir sauðfé.

Það er um að gera og mæta og renna fyrir fisk veiðin hefur verið góð það sem af er suimri og flottir fiskar veiðst. Þetta gæti bara orðið veisla fyrir veiðimenn. 

Frekar hefur verið treg veiði í vatninu en fiskurinn er þarna til staðar og allt getur gerst.

Við hofum heyrt að margir ætli að skella sér í Hlíðarven á sunnudaginn.