FréttirVeiðileyfi

Nýir leigutakar með Laugardalsá 2027

„Nú höfum við félagarnir Guðmundur Atli Ásgeirsson og Jóhannes Hinriksson tekið Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi á leigu sem hefst veiðisumarið 2027,” sagði Jóhannes Hinriksson í samtali við veidar.is

„Dásamleg laxveiðiá og þaðan á ég býsna góðar minningar með fjölskyldunni.
11 manns geta gist í góðu sjálfsmennsku húsi og þarna má líka veiða vel af silungi.

Sala er hafin og fer vel af stað, fyrstir til að tryggja sér daga fá að halda þeim næstu ár.

Ath – við höfum ákveðið að lækka verð um c.a.20% frá fullu auglýstu verði í ár og kostar deild stöng á dag á besta tíma svipað og dags húsgjald í veiðihúsum landsins,” sagði Johannes enn fremur.