Laxá i Dölum opnaði á tveimur löxum
„Já við vorum að opna Laxá í Dölum og það veiddust tveir laxar, Arngrímur Egill Gunnarsson veiddi fyrsta fiskinn þetta sumarið,” sagði Jón Þór Júlíusson en hver áin af annarri opnar þessa dagana og veiðin jú það eru laxar á land.
„Það veiddust tveir laxar annar í Matarpolli og hinn í Neðri Kistu,” sagði Jón enn fremur.
Haukadalsá í Dölum hefur líka opnað og þar hafa veiðst 6 laxar var rólegt til að byrja með. Grímsá í Borgarfirði hefur nokkra laxa og allavega þrír laxar hafa veiðst í Flókadalsá í Borgarfirði síðan áin opnaði.

