FréttirLífsstíll

Frábær ferð flott veiði

Hópurinn

Kvennanefnd SVFR fór í sína árlegu ferð í Laxá í Laxárdal dagana 22-25. júní sl.  Alls voru 14 konur með í för og skartaði dalurinn sínu fegursta í dásamlegu veðri eftir frekar kalda og hráslagalega daga fram að því. Fiskarnir létu sig ekki vanta og þegar upp var staðið komu 27 fiskar á land og annað eins sem slapp áður en að myndatöku kom. 

„Frábær stemning var í ferðinni eins og meðfylgjandi myndir sýna,“ sagði Rún Knútsdóttir um ferðina 

Kvennanefnd SVFR var stofnuð árið 2013 til að skapa vettvang fyrir veiði konur, efla tengslanetið og vera sýnilegt hvatningarafl fyrir konur í veiði – bæði reyndar og óreyndar. Starfið er fjölbreytt, opin hús yfir vetrartímann, kastnámskeið og veiðiferðir sem er ávallt hápunktur ársins. 

Með félagsstarfinu leggjum við áherslu á að valdefla og styrkja konur í veiði, og eru allar veiðikonur ávallt velkomnar á viðburði okkar.

Rún með 66 cm fisk úr Atlavík
Efemía með 65 cm fisk úr Nautatanga
Stefanía með glæsilegan fisk
Láxá í Laxárdal