Veislan er byrjuð fyrir alvöru í Jöklu
Veðin byrjaði rólega í Jöklu fyrstu dagana en virðist öll vera að koma til og í dag veiddust 16 laxar eftir að vatnið minnkaði verulega. „Megnið af laxinum var fyrir neðan Steinbogann en það hefur breyst síðustu daga, fengum 16 laxa í gær sem er flott veiði. Laxinn er farinn að heltast inn og kemst upp um allt núna. Við Árni Baldursson fengum fjóra laxa í gær. Hólaflúðin og Stapinn eru að gefa vel en fleiri staðir,“ sagði Þröstur enn fremur.
Jökla hefur gefið 30 laxa og allt virðist vera að komast á stað. Yfirfallið kemur vonandi seint um síðir eða jafnvel ekkert í sumar.
Sandá í Þistilfirði hefur gefið 10 laxa og 2 laxar hafa veiðst í Miðfjarðará í Bakkafirði. Svalbarðsá hefur gefið 8 laxa.


