FréttirVeiðitölur

Ytri-Rangá að vakna til lífsins

Það er mikið af Laxi að ganga þessa dagana og eru veiðimenn að sjá lax á öllum svæðum, Það er búið að vera líflegt á neðri hluta Ytri Rangár síðustu daga og þetta er allt að smella hjá okkur. Í gær komu 12 laxar á land og nokkrir misstir. Laxateljarinn í Ægisíðufossi er að telja 10-12 laxa á dag sl 3 daga en mun sennilega aukast mikið um leið og vatnið hitnar en það er mikið af fiski fyrir neðan Ægisíðufoss þessa stundina.

Staðan er þannig að Þverá í Borgarfirði  heldur toppsætinu með 550 laxa, síðan kemur Norðurá í Borgarfirði með 261 laxa, svo Urriðafoss með 241 lax og Miðfjarðará með 143 laxa.

Allt á fleygiferð þessa dagana laxinn er að mæta víða en alls ekki allstaðar eins og fyrir norðan ennþá.