Fullt af fiski í flugukennslunni
„Emilio Arenas Vallejo svili minn bað mig um að kenna sér fluguveiði og mér fannst fullkomið að fara með hann á austurbakka Hólsár (austan megin) því hún er full af fiski,“ sagði Daniel Karl Egilsson og bætti við; „það er fiskur frá Höllinni og lengst niður fyrir brú. Áin var lituð eftir miklar rigningar dagana á undan en ég sá að hún var að hreinsa sig þegar leið á daginn.
Ég náði 3 löxum og missti slatta og setti í annað eins. Því miður náði Emilio ekki maríulaxinum sínum í þetta sinn en þetta var líka fyrsta skiptið sem hann fer að veiða með flugu. Við munum endurtaka þessa veiðiferð að ári svo hann nær bara maríulaxinum þá,“ sagði Daniel Karl enn fremur.


