FréttirVeiðiferð

Frábær gangur í Laxá í Dölum

Eyþór Hauksson kampakátur með 92 cm lax sem tók rauðan Frances í Þegjanda

Kunnugir segja að sjaldan eða aldrei hafi jafn mikið af laxi gengið í ánna og hver einasti staður heldur laxi og voru laxar einnig að sjást á ómerktum stöðum. Hollið sem lauk veiðum 26. ágúst gerði fantaveiði og endaði með 134 laxa á land á þremur dögum á sex stangir.

Veiðimennirnir í þessu holli voru afar heppnir með aðstæður þar sem rignt hafði lítillega daginn áður en veiðar hófust og á fyrsta heila deginum hellirigndi þannig að vatnið í ánni óx töluvert og litaðist örlítið en tók síðan að falla mjög skarpt. Við þessar aðstæður er oft mikil taka og lentu veiðimenn ítrekað í góðri veiði og sem dæmi komu 5 laxar í beit upp úr veiðistaðnum Bakka á tveimur tímum eitt kvöldið.

Þórarinn Þórarinsson með flottan hæng sem tók Gaukinn keilu nr. 12
Marteinn Jónasson með einn flottan úr Svartfossi