Átján laxar í Hrútafjarðará
„Veiðin gekk bara vel hjá okkur fengum 18 laxa, lítið vatn og bjartviðri,” sagði Karl Kristján Ásgeirsson, sem var að hætta veiðum í Hrútafjarðará og bætti við; „fengum líka nokkrar vænar bleikjur í túrnum. Veiddum mikið af stórlaxi, tveir yfir 90 sentimetra og nokkrir um og yfir 70 sentimetra.
Það eru komnir 148 laxar og töluvert af bleikju, það er fiskur um alla á. Þetta var sannarlega fín veiðitúr í Hrútu,” sagði Karl Kristján, sem hefur oft veitt í ánni og þekkir hana vel.
En kíkjum aðeins á toppstöðuna, þó Hrúta sé reyndar ekki þar. Eystri-Rangá er búinn að fanga topp sætið með 2412 laxa, síðan kemur Ytri með 2339 laxa, þá Þverá með 2108 laxa, Jökla með 1400 laxa, Miðfjarðará með 1080 og svona mætti lengi, lengi telja.
Ótrúlegt að sjá veiðina í Selá og Hofsá, hún mætti vera töluvert miklu betri. En það er ennþá tími til að bæta hana.


