Krossá í Birtu að fyllast af laxi
„Við vorum að koma úr Krossá í Bitrufirði,”sagði Magnús Gunnarsson, „og fengum fjóra laxa, sá stærsti 79cm . Við náðum nokkrum silungum á grillið.
Sáum fisk víða en erfitt að eiga við hann vegna lítils vatns. Í sumum hyljum mátti sjá mikið af fiski og í einum þeirra töldum við hátt í 40 fiska.”
Þeir eiga von á góðu sem fá smá rigningu sagði Magnús en hann og félagar eru að fara í Krossá í annað sinn en fyrsti skiptið var í fyrra.
Veiðihúsið er algjörlega frábært og greinilegt að núverandi leigutakar hafa lagt mikinn metnað í að vel fari um veiðimenn sagði hann kátur eftir vel heppnaðan veiðitúr.
Veiðihúsið við Krossá hefur verið tekið í gegn og hefur verið stórbætt allt saman frá A til Ö. Glæsilega gert sannarlega.


