Fréttir

Tour de France við Elliðaárnar

„Það er alltaf sérstök tilfinning að landa laxi í Hundasteinum. Laxinn auðvitað eftirminnilegur á þessum fallega stað,“ sagði Gylfi Jón Gylfason eftir mjög eftirminnilegan veiðitúr í Elliðarnar um helgina. „Umgjörðin er líka sérstök vegna þeirra sem eru að nýta sér dásemdir Elliðaárdalsins í útivist. Eiginlega alveg um leið og laxinn tók stoppaði franskt hjólreiðateymi á brúnni fyrir ofan hylinn. Þeir hvöttu mig áfram eins og ég væri að keppa í Tour de France. Þegar ég landaði brast á með lófataki og fagnaðarlátum. Þeir voru enn á Brúnni þegar við Ingibjörg Bryndís gengum upp í bíl og klöppuðu mér á bakið þegar við gengum í gegnum þvöguna. Tour de France hvað,“ sagði Gylfi Jón í lokin 

Elliðarnar hafa gefið 100 laxa.