Fréttir

Grímsá í klakaböndum í vikunni

Klakabundin Grímsá

„Við vorum á ferðinni við Grímsá í Borgarfirði fyrir fáum dögum,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasa, en Hreggnasi leigir Grímsá og Jón Þór var að skoða stöðuna við ána. Það er tignarlegt við Grímsá þessa daga og áin í klakaböndum sem magnað er að berja augum en „sjón er sögu ríkari,“ sagði Jón Þór og sendi okkur þessar stórbrotnu myndir sem hann tók í ferðinni.

Vorveiðin byrjar 1. apríl í Grímsá og ekki er að sjá mikinn snjó á svæðinu. 

Myndir / Jón Þór Júlíusson