Klapparfljótið sterkt enn eitt sumarið
„Í sumar hafa veiðst 41 laxar í Hvolsá og Staðarhólsá,“ sagði Úlfar Reynisson, sem var að hætta veiðum í góðra vina hópi.
„Við veiddum 6 laxa, 2 sjóbirtina og 15 – 20 bleikjur. Það vantar rigningu, báðar árnar eru vatnslitlar, það er óvenju lítið vatn í Brekkudalsá og þess vegna er óvenju lítið vatn í Hvolsá.
Það var mikið fjör í Lóninu, margir laxar að stökkva og þar veiddist einn lax. Þrír laxar veiddust í Klapparfljóti, en helmingur allra laxa í sumar hafa veiðst þar. Maríulaxinn veiddist í Gljúfrunum fyrir ofan Kjarlaksvelli. Úlfhildur Rún Sindradóttir veiddi laxinn,“ sagði Úlfar enn fremur.

