FréttirRisafiskurSumarið

Kominn með tvö hundruð laxa og þann stærsta líka

Nils Folmer Jorgensen með stærsta lax sumarsins úr Laxá í Aðaldal, 107 sentimetra

Veiðin hefur verið víða verulega góða og veiðimenn verið að fá flotta veiði, við heyrðum í einum þeirra sem er búinn að veiða vel af laxi. Nils Folmer Jorgensen nýkomnum úr veiði.

„Já, það er búið að veiða mikið í sumar og ég var að koma úr Stóru-Laxá síðusta veiðiferð sumarsins,“ sagði Nils Folmer Jorgensen í samtali við veidar.is, eftir margar veiðiferðir um landið.

„Landaði í Stóru 95 og 86 sentimetra fiskum í miklu flóðvatni, mikið vatn já þarna. Í sumar er ég búinn að landa um 200 löxum á þessu veiðitímabili, allt náttúrulegir laxar. Þeir stærstu voru 107, 102 og 101 sentimetra langir. Sá stærsti veiddist í Laxá í Aðaldal, þetta er búið að vera gott sumar. Besta ferðin mín var í Jöklu, en það var síðustu dagana í júlí. Veiddi 66 laxa á fjórum dögum, sá stærsti var 102 sentimetra, þetta er búið  að vera verulega gott Bender. Mikið af fiski,“ sagði Nils Folmer um veiðisumarið.

Nils Folmer Jorgensen með 102 sentimetra lax úr Jöklu