Um 100 manns komu saman á ísilögðu Mývatni um helgina til að dorga. Viðburðurinn er partur af Vetrarhátíð við Mývatn en þá geta gestir og gangandi prufað að dorga í boði Veiðifélags Mývatns. Dorgið nýtur alltaf gífurlegra vinsælda á Vetrarhátíðinni sem er haldin ár hvert í byrjun mars.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2024/03/Myvatn4.jpg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2024/03/Myvatn3-768x1024.jpg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2024/03/Myvatn7.jpg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2024/03/Myvatn2-768x1024.jpg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2024/03/Myvatn6.jpg)
Veðrið lék við gesti á Mývatni og ísinn var hnausþykkur og góður. Þótt veiðin hafi ekki verið uppá marga fiska þar sem aðeins ein branda kom upp úr vök var gleðin við völd og bros á hverju andliti. Gestir fengu leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að við dorgið frá Leifi Hallgrímssyni hjá Veiðifélagi Mývatns og gàtu svo hlýjað sér við góðan kakóbolla í boði Vogafjóss.