Fréttir

Nýr staðahaldari við Langá

Við Langá á Mýrum /Mynd GBender
Kristján Friðriksson

SVFR hefur samið við Kristján Friðriksson um að taka að sér staðarhald og veiðivörslu í Langá á komandi sumri. Hann mun því taka á móti veiðimönnum í Langá, sjá um skiptingar og fylgjast með að allt sé eins og það á að vera við Langá næsta sumar. Kristján hefur verið viðloðandi stangaveiðina síðustu áratugi og meðal annars gefið út veiðibók, auk bess aõ halda úti veiðivefnum Fos.is. Þá er hann einnig forsprakki Febrúarflugna á Facebook sem hefur slegið i gegn en sá viðburður stækkar á hverju ári. 

Biðin eftir veiðitímanum styttist með hverjum degi, snjórinn að hverfa og vonandi rignir að einhverju marki næsta sumar, svo allt þorni nú ekki upp enn einu sinni.