Fréttir

Það gengur bara frábærlega hjá okkur – góð veiði í Þverá í Borgarfirði

„Ég er bara við Ytri Rangá þessa dagana og veiðin gengur frábærlega hjá okkur,“ sagði Stefán Sigurðsson þegar við heyrðum í honum. „Það er verið að landa 25 til 35 löxum á dag núna og þessi var að koma á land fyrir nokkrum mínútum,“ sagði Stefán.  

„Það er fullt af laxi að ganga og á eftir að aukast  á næstu dögum,“ sagði Stefán ennfremur.

Og nokkru ofar í landinu eða við Kjarrá var Styrmir E Ingólfsson og við heyrðum aðeins í honum. „Það gengur ágætlega hérna í Kjarrá  og það veiddust 103 laxar síðustu þrjá daga í Þverá sem er flott veiði. Smálaxinn er heldur betur að mæta,“ sagði Styrmir ennfremur. 

Í Miðá í Dölum er það að frétta að þar eru komnir 33 laxar á land og töluvert af flottri bleikju.

Mynd.  Lax sem var að koma á land í Ytri-Rangá.