„Við vorum að koma úr Affalinu og fengum flotta veiði, það er mikið af fiski víða í henni,“ sagði Axel Ingi Viðarsson er við spurðum hann um veiðitúrinn sem hann var að koma úr og var á leiðinni í Hítará daginn eftir.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/09/E1BF0210-34E7-4E3E-AE31-C0C459FE82C0-576x1024.jpeg)
„Affallið er skemmtilegt svæði og allir fengu fiska, flugan Frábær gaf vel af fiski í túrnum. Veiðin hefur gengið vel hjá mér í sumar og margir laxar komnir á land. Hítará er næst en þar fór ég fyrst í fyrra og sú laxveiðiá býður upp á ýmislegt fyrir veiðimenn,“ sagði Axel sem ætlaði örugglega að reyna fluguna Frábær en Hítará, sem er vatnsmikil eins og fleiri ár í næsta nágrenni við hana þessa dagana, eftir miklar rigningar.