Dagana 4.–6. júní sl. var farin ferð í Langá á Mýrum undir formerkjum verkefnisins „Kastað til bata“. Verkefnið er endurhæfingarverkefni á vegum Krabbameinsfélagsins, Brjóstaheilla – samhjálpar kvenna, og styrktaraðilum. Stangveiðifélag Reykjavíkur er stoltur styrktaraðili verkefnisins og Kvennanefnd SVFR kemur að þátttöku fyrir hönd félagsins.

Verkefnið hefur verið haldið frá árinu 2010 og byggt á bandarískri fyrirmynd og er hugsað sem endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini, þar sem þeim er boðið í veiðiferð þeim að kostnaðarlausu. María í Veiðihorninu kom og færði konunum góðar gjafir, en rétt er að nefna það verslunin styður við verkefnið m.a. með því að lána vöðlur og veiðistangir auk þess að gefa þátttakendum flugur.

Í ár tóku 14 konur þátt héðan og þaðan af landinu. Utan um hópinn hélt Auður Elísabet Jóhannsdóttir, verkefnastjóri verkefnisins og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu ásamt þremur sjálfboðaliðum Brjóstaheilla þeim Guðrúnu Kristínu, Ingu og Guðmundu.  Þetta er 10 árið sem Auður heldur utan um þetta verkefni.  Þær nutu svo leiðsagnar veiðikvenna á vegum Kvennanefndar SVFR. Gaman er að segja frá því að þetta er þriðja árið í röð þar sem leiðsögn er alfarið í höndum kvenna innan SVFR og komust færri að en vildu enda einstaklega skemmtilegt verkefni.

Hluti hópsins á leiðinni yfir Langá

Konurnar fengu kastkennslu við veiðihúsið og var því næst haldið út að á þar sem kennt var að vaða yfir straumvatn þar sem vaðið var yfir Langá fyrir ofan Neðri-Hvítstaðahyl. Þá fengu konurnar að æfa sig að kasta flugu í straumvatn undir leiðsögn kvennanefndarkvenna auk þess sem Laxastiginn við Sveðjufoss var heimsóttur og Anna Þórunn Reynis sagði frábyggingu hans enda lengsti laxastigi landsins og á hann sér merka byggingarsögu.

Óhætt er að segja að allar sem ein hafi notið verunnar í Langárbyrgi og á bökkum árinnar.  
Okkur fannst gaman að fá að taka þátt í því að kynna fluguveiði fyrir áhugasömum tilvonandi veiðikonum.

Kvennanefnd Svfr,
Sæunn, Helga, Rún og Þóra Sigrún