FréttirKrakkar

Fyrsti fiskurinn á land

„Við sonur minn höfum farið saman á veiðar í Hafnarfjarðarhöfn og á Þingvallavatn síðustu misseri,” sagði Ágúst Óli Sigurðsson og bætti við; „um daginn veiddi hann sinn allra fyrsta fisk – marhnút á spún með kaststöng og gleðin var ólýsanleg hjá mínum manni. Þetta var stór stund fyrir okkur báða, enda kom veiðidellan til mín frá föður mínum og nú er ég að reyna að smita næstu kynslóð. Svona minningar gleymast aldrei,” sagði Ágúst Óli enn fremur.

Já það eru margir að hefja veiðiskapinn á bryggjum landsins og fá þar sína fyrstu fiska. Fátt er skemmtilegra en fara niður á bryggju og renna fyrir fisk.