FréttirLaxveiðiár

Laxastofninn í Jöklu springur út!

Það er fallegt við Jöklu.

Við getum ekki beðið eftir veislunni sem framundan er í Jöklu 2026 segja Strengir og Þröstur Elliðason.  Seðlatalningar benda til þess að stofninn hafi margfaldast sl. ár eins og sjá má á meðfylgjandi grafi. Gulu súlurnar eru seiði úr smáseiðasleppingum en aðrir litir eru vilt seiði á misjöfnum aldri. Eftir árið 2020 hafa villtu seiðin tekið yfir uppeldissvæðin og ljóst er að hin mikla smálaxaganga sem kom í Jöklu í júlí og byrjun ágúst 2025 er fyrsti afrakstur af þessari sprengingu í fjölda þeirra. Og nánast allt voru það smálaxa hængar svo hrygnurnar eru væntanlegar sem stórlax 2026. 

En í lok júní og í júlí sl sumar var einnig vart við gríðarlegan fjölda niðurgönguseiða á leið til sjávar í Jöklu og þetta myndband tekið í laxastiganum í Steinboganum sýnir það vel. Á löngu tímabili voru stórar torfur á leið þarna niður Jöklu og smálaxagöngur næsta sumar ættu því að vera stórar er óhætt að segja.

Það er sannarlega byrjað að spá í næsta sumar sem engin veit hvernig verður í veiðiánum víða um land. Fiskifræðingar segja lítið ennþá sögðu helling í fyrra  og flest sökk í dýpstu hyli veiðiánna.

Næsta sumar verður stór spurningarmerki og verður spennandi að sjá hvernig það byrjar og endar. Allir bíða spenntir.