Skagaheiðin er bara veisla
„Við félagarnir förum í árlegu ferðina okkar upp á heiði núna um miðjan júní, yfirspenntir eins og alltaf að komast upp í kofann góða,“ sagði Jóhannes Snær Eiríksson og bætti við; „auðvitað krossa svo fingur um að veðrið verði til friðs, sem það var svo sannarlega í þessum túr, 8-9 stiga hiti. Algjör stilla og örlítil rigning af og til. Flugan átti erfitt uppdráttar eftir hretið sem skall á fyrr í sumar en virðist öll vera að koma til þarna uppfrá og veiðin eftir því. Við létum okkur nægja að veiða Ölvesvatn, Eiðsánna og Fossvatn í þetta skiptið enda enginn ástæða til annars þar sem veiðin var fanta góð, eitthvað yfir 100 fiskar allt í allt.
Veiddum á allt frá smáum þurrflugum yfir í grodda straumflugur en langstærstur hluti af veiðinni fékkst á litlar hvítar straumflugur og slatti á maðk. Það jafnast ekkert á við svona ferðir þarna uppeftir í góðum félagsskap, í flottri veiði og veðri, með nóg af góðum mat og drykki,“ sagði Jóhannes Snær í lokin.


