Þrír laxar á 45 mínútum í Ytri-Rangá
Ytrr-Rangá byrjaði með hvelli í morgun en á stuttum tíma veiddust 3 laxar og Einar Snorri Magnússon veiddi fyrsta laxinn. Fyrsti fiskurinn var kominn í háfinn eftir fimmtán mínútur í morgunsárið.
Margar veiðiár eru að opna þessa dagana, borgarstjórinn, Heiða Björg Hilmisdóttir opnaði Elliðaárnar í morgun, Víðidalsá opnaði á dögunum, Laxá í Aðaldal og Vatnsdalsá einnig.
Segja má að opnun veiðiánna sé víða rólegri en vonir stóðu til, einn og einn fiskur á land.