FréttirOpnun

Skagaheiðin opnaði með stæl

„Það var fyrir fáum dögum sem við félagarnir Stefán Freyr og ég vorum við veiðar á Skagaheiðinni, nánar tiltekið við Ölvesvatn og næsta nágrenni,” sagði Hörður Heiðar Guðbjörnsson um flottan veiðitúr og bætti við; „Við höfðum aldrei komið svona snemma að vori áður, en bæði veður og veiði var alveg uppá tíu. Að fá að veiða fram í nóttina á fallegum stað í góðu veðri og fiskur að vaka og taka um allt, eru forréttindi á þessu góða landi. Eins og oft áður vorum við bara nokkuð duglegir að prófa staði á þessu svæði og það var eins hjá öðrum veiðimenn sem þarna voru, allir voru glaðir með hvað veiddist vel. Fiskurinn hefur oft verði stærri á þessum slóðum, en kannski hefur það eitthvað það að gera að við vorum tímalega á ferðinni, þ.e. í opnun.  Ef það er einhver sem er þarna úti að velta fyrir sér hvort það sé þess virði að fara og veiða í Ölvesvatni og vötnunum þar í kring er svarið einfalt, JÁ OG EKKI HIKA. Ég bendi samt þeim aðilum sem ætla að fara að vera á góðum bíl, en vegurinn getur verið erfiður, þ.e. grýttur og erfiður yfirferðar,” sagði Hörður enn fremur.