Fréttir

Þetta hefur verið einmuna tíð til að veiða

Flestir leggja stönginni þegar haustar og fara að gera eitthvað allt annað, en það er einn og einn sem ennþá veiðir og veiðir mikið. Tíðarfarið er búið að vera með eindæmum gott í haust og vel hægt að veiða aðeins lengur, miklu lengur.

Ég þekkti einn sem fór alltaf fyrir hádegi á aðfangadag og tók einn kast með flugu stönginni sinn, bara að fá útrás. Þetta gerði hann til fjölda ára.

„Veðurfarið hefur verið rosalega gott og ég er búinn að veiða mikið, mest á sama staðnum, taka nokkur köst það er meiriháttar,” sagði veiðimaðurinn og bætti við; „fór oft í haust að  veiða í 8 til 10 stiga hita, sem var meiriháttar. Það eru til staðir sem má veiða yfir vetrartímann. Einn og einn fiskur og öllu sleppt aftur á litlar flugur, þetta gefur manni ansi mikið skal ég segja þér. Tíðarfarið er mikið að breytast þessi árin, mjög mikið,” sagði veiðimaðurinn enn fremur.