Nýr veiðiskóli opnar – öll námskeið á einum stað
Hópur reyndra leiðsögumanna hefur tekið höndum saman og stofnað Veiðiskólann, sem miðar að því að efla færni veiðimanna og skapa skipulag í kringum fræðslu og kennslu sem tengist stangveiði. Að baki verkefninu standa Bjarki Már Jóhannsson, Reynir Friðriksson og Jóhannes Hinriksson – allir með áratuga reynslu af leiðsögn í lax- og silungsveiði, fyrirlestrahaldi, fluguhnýtingum og kennslu. Hugmyndin er að í framhaldinu muni fleiri leiðbeinendur bætast við.
„Við höfum lengi starfað saman við leiðsögn og kennslu, á síðustu árum höfum við orðið varir við aukinn áhuga á fræðslu í tengslum við veiði“ segir Bjarki Már. “
Markmið skólans er að veiðimenn geti bætt sig í sínu sporti með faglegri fræðslu. Í fyrstu verður boðið upp á hnýtinganámskeið fyrir byrjendur og lengra komna og flugukastnámskeið – bæði á tvíhendur og einhendur. „Við höfum oft séð að veiðimenn eyða fyrsta deginum í laxveiði í kastkennslu með leiðsögumanni. „Með því að skella sér á námskeið áður en mætt er í ánna fær viðkomandi mun meira út úr veiðideginum sínum.“
Skólinn mun einnig bjóða upp á fyrirlestra um ýmislegt sem tengist veiði, hvort sem það er um flugulínur, hnýtingar eða fræðslu um ársvæði sem leiðsögumenn hafa starfað á. Oft eru veiðihópar að fara í sína fyrstu ferð á ný svæði og vilja fá krasskúrs til að undirbúa sig. Þá er um að gera að setja sig í samband og við finnum réttan aðila í verkið.
Með stofnun skólans vonumst við til að einfalda fólki leitina að fræðslu og vonumst til að sjá sem allra flesta. Fyrstu námskeiðin verða í boði á næstu vikum og biðjum áhugasama að setja sig í samband við okkur í gegnum facebook síðuna; Veiðiskólinn.

