Veiðimenn að renna fyrir fisk í Hlíðarvatni
FréttirVeiðidagur

Flottur dagur og ferskir veiðimenn – frítt í Hlíðarvatn

„Þetta var fínn dagur við Hlíðarvatn í Selvogi og gaman að þessu,” sagði Ingi Már Gunnarsson sem mætti ásamt vöskum veiðimönnum við Hlíðarvatn í morgun en í dag var veiðimönnum boðið frítt að að veiða  þar og þáðu margir það. En veiðifélögin  við vatnið bjóða upp á þessa veislu einu sinni á ári, frítt fyrir alla.

„Við komum snemma, ég og Gunnar vinur minn, við fengum sinn hvorn fiskinn en  frekar smáa fiska en þetta var gaman og við fréttum af nokkrum fiskum sem veiddust. Þegar við vorum að fara heim var veiðimönnum að fjölga við vatnið og eitthvað hafði veiðst,” sagði Ingi Már enn fremur.

Gunnar Kristleifsson með fiskinn sem hann veiddi.  Myndir Ingi Már