FréttirKvikmynd

Árnar þagna frumsýnd á Akureyri

Ný heimildarmynd eftir Óskar Pál Sveinsson verður frumsýnd í Sambíóunum Akureyri i dag.  Að lokinni sýningu verða umræður um efni hennar milli íbúa og frambjóðenda í Norðausturkjördæmi.

Myndin heitir Árnar þagna og fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu fjölskyldna í sveitum Íslands og Noregs sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af sjálfbærum stangveiðum í margar kynslóðir.

„Vð sjáum nú hver verður framtíð íslenska villta laxastofnsins og samfélaga í sveitum landsins sem hafa notið laxveiðihlunninda kynslóð eftir kynslóð ef ekki verður brugðist við,“ segir Óskar Páll.

Sú framtíð rann upp í Noregi í júní á þessu ári þegar Umhverfisstofnun Noregs fyrirskipaði lokun 33 af þekktustu laxveiðiám landsins vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum í Noregi. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölda samfélaga sem hefur byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði.

Óskar Páll Sveinsson /Mynd: Rax

Í myndinni er rætt við eigendur norskra laxáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra í sumar, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.

Handritið að myndinni er eftir Óskar Pál og Jón Kaldal, sem jafnframt er í hlutverki eins framleiðenda hennar. 

Ástæðan fyrir því að myndin er frumsýnd á Akureyri eru nýlegar hugmyndir um að setja sjókvíaeldi af iðnaðarskala í Eyjafjörð. 

„Við höfum enga trú á því að þau áform verði að veruleika, en myndin undirstrikar þau verðmæti sem sjálfbær umgengni við villta laxinn færir fjölskyldum sem búa í dreifbýli landsins. Sleppifiskur úr opnum sjókvíum í Eyjafirði myndi margfalda þann skaða sem þegar er orðinn á villtum íslenskum laxi,“ útskýrir Jón. Hann bætir við að í Eyjafirði eru meginheimkynni íslenska bleikjustofnsins. „Í ánum við fjörðinn eru um 40 prósent af bleikjustofnum landsins. Dagar bleikjunnar eru taldir í Eyjafirði ef áform um 20.000 tonna sjókvíaeldi á laxi í firðinum verða að veruleika. Laxalúsin, sem verður til í gríðarlegu magni í sjókvíunum, eirir engum laxfiskum, hvorki laxinum sjálfum, bleikju né sjóbirtingi,“ segir Jón.

Jón Kaldal

Viðburðurinn er í samstarfi við Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) og veiðifélög í Norðausturkjördæmi.

Árnar þagna verður sýnd í nóvember í öllum landshlutum í samvinnu við veiðifélög og náttúruverndarsamtök á hverjum stað og fer síðar í almenna sýningu í sjónvarpi. Sérstakar sýningar verða líka í Noregi í desember og á næsta ári.

Hér er hægt að skoða stiklu úr myndinni (https://www.youtube.com/watch?v=TAlZw_cQdAo)

!