Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, með lax sem hún veiddið við opnun Elliðaánna
FréttirOpnun

Borgarstjóri setti í lax við opnunina í morgun

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, renndi fyrir laxi í Elliðaánum við opnun ánna í morgun og setti í myndarlegan lax í Hundasteinum.
Veiðimenn hittust við veiðihúsið í Elliðaárdal og Ragnheiður Thorsteinsson, formaður Stangveiðifélagsins lýsti formlega yfir opnun ánna. Að því loknu var boðið upp á léttan morgunverð.
Árnar eru nú opnaðar í 86. sinn fyrir veiði og hafa borgarstjórar opnað Elliðaárnar allt frá árinu 1960. Laxinn er þegar genginn í árnar og má búast við líflegri stemningu við árbakkann. 
Elliðaárnar eru í dag meðal bestu laxveiðiáa landsins og eru hluti af einu fallegasta útivistarsvæði Reykvíkinga. 

Rvk