Laxinn mættur í Laxá í Kjós
Laxinn er að sjást í hverri ánni af annarri og laxinn er mættur í Laxá í Kjós en flottur lax sást í Pokafossi og hann var vænn. Lax hefur sést í Norðurá í Borgarfirði og á Seleyri við Borgarfjörð. Það hefur víða verið kikt eftir laxi, en kannski ekki sést mikið ennþá, samt einn og einn lax. Það styttist í opnun Jöklu 24 júní og veiðimenn geta ekki beðið frekar enn annars staðar. Reyndar eru óstaðfestar fréttir að lax hafi sést nú þegar skammt neðan við Steinboga en það kemur betur í ljós í júní segir leigutakinn. En allt er þetta að koma, laxinn á leiðinni og fleiri laxar eiga eftir sjást á allra næstu dögum, en hvernig sumarið verður veit enginn. Hnúðlaxinn mætir alla vega og veiðin verður vonandi góð, yfirfall á leiðinni, vatnsstaðan og sumarið er spurningamerki.
En laxveiðin hefst á sunnudaginn í Þjórsá og verður spennandi að sjá hvernig veiðin byrji. Laxinn er mættur í Þjórsá.